Efni
Höfundur
Kolla Kvaran er rétt rúmlega fertug stúlka með áhuga á öllu. Hún er söngkona og hefur stundað nám í hinum og þessum tegundum af söng. Hún er blúsrokkari af lífi og sál en tekur sig stundum til og syngur óperu eða ástaljóð fyrir ástfangið fólk.
Kollan stundaði einnig nám í listhönnun hér á árum áður og sinnir þeim áhugamálum sínum þegar tími gefst til.
Hún er núna í pásu frá háskólanámi hjá HÍ en hefur ensku og þýðingar í framtíðarsýn sinni.
Kollan er gift og á nokkur börn sem sum hver eru orðin fullorðin en önnur ekki. Hún hefur mikinn áhuga á réttindum foreldra og barna með ýmsar raskanir.
Hún er SGI-búddisti og hefur gríðarlegan áhuga á öllu sem viðkemur trúmálum, heimspeki og lífsspeki.
Hún skrifar smásögur og ljóð en hefur yndi af því að segja fólki hvernig hægt er að bæta líf sitt og líðan því hún hefur mikla reynslu að baki og komst lifandi frá því. Hún er að skrifa skáldsögu í frítíma sínum, en hann er sjaldséður svo það gengur hægt.
Kollan kann að prjóna...en bara einlita trefla.
p.s.
Uppfært; Kollan er búin að læra að lesa prjónauppskriftir svo treflarnir eru komnir með munstur....
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Bækur
Bækur
-
Clive Cussler: Atlantis Found
Ofboðslega spennandi og hver blaðsíða kemur á óvart.
***** -
Dean Koontz: The Taking
Alveg brilljant! Eins og flest sem kemur frá þessum höfundi.
***** -
Stephen King: The Green Mile
Að mínu mati það besta sem ég hef lesið eftir kallinn og er ég búin að lesa tonn eftir hann.Ásamt mikið eftir.
*****
Tónlist
Tónlist
-
John Lennon - Imagine
Eitt allra fallegasta lag og ljóð sem samið hefur verið og ættu allir að taka boðskapinn í þessu lagi beint í hjartað!
*****
Myndaalbúm
Af mbl.is
Tónlistarspilari
Hvar býr hamingjan?
22.2.2011 | 18:33
Ég hef oft spurt mig að því í gegnum tíðina hvort það sé nokkur tilgangur með lífinu. Hef ég einhvern tilgang? Af hverju er ég hér? Og hvað á ég að gera?
Eins og með alla aðra hafa hrjáð mig allskonar krankleikar og vandamálin ætla engan endi að taka, svo hvað er málið?
Eftir að hafa legið undir feldi í svolítinn tíma til að hugsa hef ég komið upp með svör sem virka fyrir mig. Það má kalla þetta uppljómun um eigið líf. Ef ég skoða líf mitt, allt sem er að, þá blasir svarið við mér.
Tilgangurinn er að sigrast á erfiðleikunum og veikindunum til að geta kennt öðrum hvernig á að gera það. Ég er ekki að tala um að veikindin eða erfiðleikarnir hverfi, ekki þannig sigur, það er oft á tíðum ekki hægt.
Heldur að láta ekki bugast, vera hamingjusöm ÞRÁTT fyrir erfiðleikana en ekki bíða eftir að þeir hverfi. Ef maður gerði það þyrfti maður alltaf að setja hamingju sína á bið. Og hvers vegna ætti maður að verða eitthvað frekar hamingjusamari seinna? Verður ekki alltaf eitthvað sem kemur þá í veg fyrir það?
Erfiðleikar eru bara erfiðleikar ef við lítum þannig á þá.
Ef það væri STAÐREYND að vandamál væru erfiðleikar þá mundu allir þjást af hamingjuskorti alltaf. Sumt fólk getur verið ákaflega hamingjusamt þrátt fyrir peningaleysi, svo ekki getur peningaleysi verið raunverulegt vandamál heldur er það viðhorfið til þess sem er raunverulega vandamálið. Hinir raunverulegu erfiðleikar.
Niðurstaða mín í þessu máli er þá sem sagt sú að það er bara til eitt RAUNVERULEGT vandamál í heiminum, einir RAUNVERULEGIR erfiðleikar.
NEIKVÆTT VIÐHORF.
Ef það hrjá þig einhverjir ólæknandi sjúkdómar, þýðir víst lítið að halda að þú verðir ekki hamingjusamur fyrr en þeir hverfa. Ef þú sérð ekki fram á að eiga fyrir skuldunum eða mat næstu árin, þá verður þú ekkert ríkari við að hafa áhyggjur af því.
Hinsvegar er það nú einhvern veginn svo að fólk með jákvætt hugarfar, fólk sem býr við raunverulega hamingju, hefur meira aðdráttarafl en annað fólk. Þá er ég ekki bara að tala um aðdráttarafl gagnvart öðru fólki, heldur líka gagnvart öllum hlutum.
Jákvætt fólk fær frekar launahækkun, stöðuhækkun, hjálp, finnur minna til og það er vísindalega sannað að jákvæðni getur hjálpað frumum líkamans að endurnýja sig og láta allt virka eins og það á að gera og losa sig við óæskilegar bakteríur, frumumyndanir og úrgangsefni.
Jákvætt viðhorf dregur að annað fólk með jákvætt viðhorf.
Ég hef einnig komist af því að hamingjan býr í þakklætinu. Þakkaðu fyrir ALLT sem á daga þína hefur dregið. Án þess værir þú ekki sú manneskja sem þú ert í dag. Ef þú ert ekki ánægður með þá manneskju sem þú hefur að geyma, þakkaðu samt fyrir að vera þú því þú ert sú eina manneskja í öllum heiminum sem getur breytt þér.
Það er ástæða fyrir því að þú ert hingað komin til að lesa þetta. Það er ástæða fyrir öllu. Leggstu undir feld og skoðaðu málið.
Ert þú þakklát/ur fyrir að vera þú eða ertu það ekki? Hver er ástæðan? Fyrir hvað getur þú verið þakklátur? Það er ástæða fyrir því að þú valdir þér þessa foreldra, hvar þú býrð, hvað þú vinnur.
Þakkaðu fyrir maka þinn hvernig sem hann er því þú getur lært af honum hvernig manneskja þú vilt vera eða ekki vera. Þakkaðu fyrir börnin þín hvernig sem þau láta því þau kenna þér hvernig manneskja þú ert í raun.
Þakkaðu fyrir vini þína því þeir spegla þig, þakkaðu fyrir heilsu þína hvernig svo sem hún er því þar er tækifærið grafið til að sjá hvort ég hafi ekki rétt fyrir mér.
Það er ekkert sem heitir góð reynsla eða slæm reynsla, reynsla er bara reynsla og hvort hún er góð eða slæm liggur eingöngu í þínu eigin viðhorfi og hvernig þú ætlar að nota hana.
Reynsla hefur engan tilgang ef hún er ekki notuð til gagns. Ef þú hefur reynslu af ofbeldi, fíkn, sjúkdómum eða einhverju sem þér hefur liðið illa yfir, þýðir ekkert að grafa höfuðið í sandinn og láta sem það hefur aldrei gerst. Það er illa nýtt reynsla og þér líður ekkert skárr.
Að nýta reynslu þína öðrum til handa, vera leiðbeinandi þeirra og sálusorgari hefur mikinn lækningarmátt fyrir þig. Ég myndi frekar leita til manneskju sem hefði sömu reynslu og ég að baki og komist yfir það, heldur en manneskju sem vissi ekkert hvað ég væri að ganga í gegnum.
Og ég vil vera sú manneskja sem fólk getur leitað til og þess vegna fagna ég öllu því sem ég hef reynt og komist yfir, því það gerir mig að betri vini.
Ég á mér mikla og stóra fortíð eins og þeir sem þekkja mig vita og reynt margt í gegnum tíðina og ég er þakklát fyrir það allt því ég er orðin ákaflega sátt við þá manneskju sem ég hef þróast í. Ef ég væri einhver annar, væri ég besta vinkona mín.
Getur þú sagt það um þig?
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.