Efni
Höfundur

Kolla Kvaran er rétt rúmlega fertug stúlka með áhuga á öllu. Hún er söngkona og hefur stundað nám í hinum og þessum tegundum af söng. Hún er blúsrokkari af lífi og sál en tekur sig stundum til og syngur óperu eða ástaljóð fyrir ástfangið fólk.
Kollan stundaði einnig nám í listhönnun hér á árum áður og sinnir þeim áhugamálum sínum þegar tími gefst til.
Hún er núna í pásu frá háskólanámi hjá HÍ en hefur ensku og þýðingar í framtíðarsýn sinni.
Kollan er gift og á nokkur börn sem sum hver eru orðin fullorðin en önnur ekki. Hún hefur mikinn áhuga á réttindum foreldra og barna með ýmsar raskanir.
Hún er SGI-búddisti og hefur gríðarlegan áhuga á öllu sem viðkemur trúmálum, heimspeki og lífsspeki.
Hún skrifar smásögur og ljóð en hefur yndi af því að segja fólki hvernig hægt er að bæta líf sitt og líðan því hún hefur mikla reynslu að baki og komst lifandi frá því. Hún er að skrifa skáldsögu í frítíma sínum, en hann er sjaldséður svo það gengur hægt.
Kollan kann að prjóna...en bara einlita trefla.
p.s.
Uppfært; Kollan er búin að læra að lesa prjónauppskriftir svo treflarnir eru komnir með munstur....
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.5.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Maí 2025
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | ||||
4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |
11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 |
18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Bækur
Bækur
-
Clive Cussler: Atlantis Found
Ofboðslega spennandi og hver blaðsíða kemur á óvart.
***** -
Dean Koontz: The Taking
Alveg brilljant! Eins og flest sem kemur frá þessum höfundi.
***** -
Stephen King: The Green Mile
Að mínu mati það besta sem ég hef lesið eftir kallinn og er ég búin að lesa tonn eftir hann.Ásamt mikið eftir.
*****
Tónlist
Tónlist
-
John Lennon - Imagine
Eitt allra fallegasta lag og ljóð sem samið hefur verið og ættu allir að taka boðskapinn í þessu lagi beint í hjartað!
*****
Myndaalbúm
Af mbl.is
Tónlistarspilari
Hin eilífa bið
1.4.2014 | 01:00
Ég fer mjög reglulega í naflskoðun. Það er mér mjög mikilvægt að þekkja sjálfa mig vel. Ég hef jafnvel verið sökuð um það að hugsa of mikið. Ég er því ekki sammála þótt hér áður fyrr hafi ég eytt þessum hugsunum mínum í að velta mér upp úr fortíðinni, reið og full eftirsjár. En ekki lengur.
Hins vegar get ég skoðað líf mitt og metið það á óhlutdrægan hátt, núorðið. Og séð að ég hef eytt tímanum í að bíða. Eftir öllum sköpuðum og ósköpuðum hlutum.
Þegar ég var unglingur eyddi ég þeim árum í að bíða eftir að ég yrði fullorðin. Gat svo ekki beðið lengur, gifti mig og eignaðist fyrsta barnið fyrir tvítugt. Þá tóku við biðir af hinum og þessum toga sem hafa síðan fylgt mér mestalla fullorðinsæfi mína.
Einhverra hluta vegna heldur mannskepnan að hamingjan og lífið komi með hinu og þessu. Það er misjafnt eftir fólki hvað það er. Sjálf setti ég mína hamingju á pásu þar til ég væri komin með betri íbúð, minna af skuldum, meira af peningum, fleiri tæki, fleiri tól, að ég yrði "uppgötvuð", að börnin yrðu svona eða hinsegin eða gerðu þetta eða hitt. Beið eftir að makinn yrði öðruvísi. Að ég yrði mjó, að ég yrði heilbrigð. Beið eftir vori, sumri, hausti, vetri og jólum. Allan ársins hring, ár eftir ár var bið eftir einhverju. Allt yrði betra ef...ef...ef...
Á meðan ég beið eftir hinu og þessu, liðu 10, 20, 30 ár án þess að ég tæki eftir því eða bara hreinlega væri með.
Lífið sjálft flaut framhjá mér á skútu án þess að ég væri um borð. Ég vaknaði upp, að verða fertug og ákvað að gera eitthvað í málunum.
Flutti á stúdentagarðana á Ásbrú og fór í skóla. Og komst að því að ég væri alls ekki heimsk þar sem ég tók síðustu tvö árin sem ég átti eftir í framhaldsskóla, á einum vetri. Og komst að því að ég væri bara aldeilis ágætur penni og ýmislegt fleira. Stofnaði blúsband og smáband. Kláraði stúdentspróf og fór síðan í fjarnám í háskóla. Styrkti fjölskylduna, fer einu sinni á ári, barnlaus með manninum mínum á hótel eða í bústað.
Sátt við konuna sem ég er, hætt að bíða og leyfi mér þann munað að vera hamingjusöm í núinu. Þótt ég eigi ekki lengur hús eða nýjustu græjurnar.
Nýt hvers augnabliks með ástvinum mínum því þessi augnablik koma aldrei aftur. Nýt hvers augnabliks með sjálfri mér því ég er að gera það sem mér þykir skemmtilegast í heiminum. Fylgist með hversdagsleikanum af áhuga, því hann er lífið.
Ég er mikill aðdáandi John Lennon og vitna oft í hann þar sem hann hafði mikla visku að geyma. Ég á mér uppáhalds tilvitnun og kemur hún úr texta sem hann samdi til sonar síns Sean. Hún segir í einni setningu það sem ég er búin að skrifa heilan pistil um hér.
Ég ætla að leyfa meistara Lennon að setja lokaorðin :
"Life is what happens to you, while you're busy making other plans"
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Innskráning
Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.